föstudagur, desember 25, 2009
jólin gott fólk.
Þorláksmessa byrjaði eins og vanalega, tók magga í skvassinu. skelltum okkur svo í Laugar í skötu/saltfisk. gott stöff.

svo í fyrsta skipti síðan 1994 fór laugarvegskeppnin ekki fram svk. venju. mikill kuldi gerði það að verkum að hallur emil, og þar með hallur og dísa, chilluðu heima. guðrún gerði sitt besta en náði kannski 4 hæ-um. en samt góð stemmning.
vona að allir hafi haft það gott. ég byrjaði á því að ganga á kertastjaka í gærkveldi og fá vax yfir mig allan. hrikalega nettur.

tókum eina möndlu af tveimur. soldið vafasamt með skálina hans óskars. annars þurftum við að fá lánaðann vörubíl fyrir allt dótið hans tomma. mæli með að menn komi í heimsókn og versli í búðinni hans. fékk nefnilega búðakassa með öllu tilheyrandi.
maturinn audda snilld að vanda. ætla að skella mér á netta five k til að minnka samviskuna pínu. hver er með?
posted by 4fl at 1:58 PM
mánudagur, desember 14, 2009
svo fer þetta kaffi alveg að detta á youtube! eruði ekki spennt?

posted by 4fl at 2:51 PM
Jó.
Ræða þetta eitthvað?
blastar þessu í the lovely 4,6km testinu á miðvikudaginn. Uss.
posted by 4fl at 2:50 PM
sunnudagur, desember 13, 2009
Jess.
vika í jólafrí. föndurvika framundan - ekki alveg mín sterkasta hlið. en við fiffum ekvað. fæ dögg láru í backup.
jólafjör langó var síðasta föstudag. kallinn er í "skemmtilegu nefndinni" sem stóð sig bara ansi vel að þessu sinni. bjöggi skellti fram heilli stuttmynd/söngleik fram úr erminni. svo tók kallinn annað sætið í skeggkeppninni :-)
litli íslenski þróttara zidane farinn í bili, breiðablik varð fyrir valinu. græt það en þetta er vonandi bara tímabundið. við verðum bara að standa okkur án hans og dröslast upp aftur.

posted by 4fl at 11:45 PM
laugardagur, nóvember 28, 2009
já.
20 +
and it´s a ....... girl :-)
posted by 4fl at 8:22 AM
Ble.
við félagarnir vaknaðir fyrir allar aldir. morgunsjónvarpið að heilla tómas, sem og cheerios. hann er ekki búinn að uppgötva coco pöffs - hér hlýt ég að fá plús þar sem ég dýrka coco pöffs og er ekki búinn að smakka það í svona ár :-(
svakaleg spenna í "icons of the decade" keppninni minni. fór reyndar bara eftir nýjasta empire! en leikar fóru þannig: óskar - 9 stig. sigrún - 6 stig. sóley - 6 stig. guðrún - 2 stig. verð að taka guðrúnu á námskeið.
búinn að taka jólakassa nr.1 niður - nokkur ljós komin upp og soddann. en ekki nógu spes þegar ein pera er biluð og allt kaffið fer ekki í gang. en fyrsti í aðventu á morgun, sunnudagaskólinn, oslóartréð og svo má ekki gleyma þremur rosalegum leikjum í boltanum - til í etta.
posted by 4fl at 8:15 AM
sunnudagur, nóvember 22, 2009
ble.
fórum á kardimommubæinn í dag. þvílík snilld. Tómas sat stjarfur í tvo tíma. Ræningjarnir áttu audda stykkið en annars bara vel gert.
Cleaning dauðans í dag. Við erum meir að segja að tala um að gluggarnir voru þrifnir að utan.
Bjó til sushi í fyrsta skipti ever í gær - gerði alveg hrikalega netta rúllu með grænmeti og omolettu (ekkert hrátt í mínum rúllum). gæti samt ekki notað pinna til að bjarga lífi mínu, en er í æfingu.
posted by 4fl at 10:02 PM
laugardagur, nóvember 21, 2009
Hrikalega þétt helgi framundan.
ber hæst að nefna kardimommubæinn á sunnudaginn. erum búin að bíða eftir stykkinu í tvo mánuði. erum búin að undirbúa tomma svaðalega, á samt von á bakslagi þegar blessað ljónið lætur sjá sig upp á sviði!
smalinn afmæli í gær - orðinn þörtí something. tókum verulega gott gúff, hefði mátt halda að kokkurinn á Pisa væri ættingi. erum ekki líklegir á pall í útihlaupinu á morgun.
allt að gerast í íbúðarmálum - hugsanlega mega menn fara að gráta að hafa ekki komið og skoðað sigluvoginn og bara skellt sér á hann!
posted by 4fl at 1:24 AM
þriðjudagur, nóvember 17, 2009
Ble.
Þarf að ræða við fólk um 2012 og Funny Games. Asap!
Annars góð bara?
Boot Camp tíminn þolanlegur í gær, fyrir utan leiðinda drumbana! Fituprósentann! Ja, no comment. Taka bara á essu.
Þema dagar í skólanum - alltaf ljúft.
posted by 4fl at 2:38 PM
mánudagur, október 26, 2009
já, búinn að heita að blogga betur. koma svo.

hvað ætliði að gera í snjókallinum okkar! afar pro.
posted by 4fl at 4:42 PM
jó.
rosalega sáttur við mína menn í gær. langþráður sigur. ætla ekki að vera með neitt skítkast á united menn, en bið þá samt að hætta snöggvast að væla!
missti af frumraun brósa á alvöru tónleikum :-( jamm - var á sviði nasa á laugardagkveldið, sem sem-i meðlimur ultra. veit ekki með stage dive eða úr að ofan - en væri til í myndir.
ekki nema ár eftir í myndaframköllun. tókum sprett áðan. rosalegt hvað maður tekur margar myndir af sama hlutnum.
vetrarfrí í gangi í langó. ekki slæmt. einnig mánaðarfrí í mfl. og ennþá lengra frí í þjálfun. afar skrýtnir dagar í gangi :-)
posted by 4fl at 4:34 PM
föstudagur, september 18, 2009
Jess.
my brand new mac að gera ansi gott mót. á bara eftir að versla einhverja flott tösku, sem kostar væntanlega handlegg.
samræmdu prófin í gangi hjá maurunum. eru að standa sig fanta vel. er sem sé aftur með hinn skemmtilega aldur 12-13 ára, annað árið í röð.
stalst inn á allposters.com í dag og fjárfesti í fimm svaðalegum plakötum. getiði hvað ég fékk mér!
skelltum okkur á miða á kardimomubæinn (getur ekki verið rétt skrifað hjá mér). erum að lesa og hlusta á þetta meistaraverk þessa daganna - tommi alveg að taka ræningjana í sátt!
meistaradeildin byrjuð. ætlaði að beila á sýn en lét til leiðast.
aju
posted by 4fl at 12:35 AM
fimmtudagur, september 10, 2009
jó.
Norræna skólahlaupið á eftir. er að melta að taka five k með krökkunum. samt lúin í kálfanum eftir að hafa fíflað unga á æfingu í fyrradag!
kynningarfundur með foreldrum áðan - verð vanari með hverju árinu. veit samt ekki hvort þau voru að fíla yfirvaraskeggið!
posted by 4fl at 9:34 AM
sunnudagur, ágúst 23, 2009
Tómas byrjaður á Sunnuborg. Er að fíla það massa vel.

Annars bara stemmning. Hey, hvaða netta íbúð er þetta?
posted by 4fl at 10:05 AM
Staðfest. Hallur Jr. mættur á svæðið. Þokkalega sprækur.

posted by 4fl at 10:01 AM
jev.
tók esjuna um daginn með maurunum. bara nokkuð nett, en vill einhver segja mér hvernig gaurinn nennti eða gat farið 6 ferðir í einu.
Beauty and the geek - staðfest lélegasti raunveruleikaþátturinn ever! bíð bara eftir að það verði gerður íslenskur þáttur.
Mæli með the boy in the striped pyjamas. talið svo við mig þegar þið eruð búin með hana!
skólinn alveg að byrja. kick off á mánudaginn. tek aftur að mér 7.bekk, sem er bara nett. verð í sömu stofu og svoddann.
posted by 4fl at 9:59 AM
þriðjudagur, júlí 07, 2009
jamm.
er að horfa á minningarathöfnina um jackson. finnst pínu skrýtið að kistann skuli vera á staðnum. eða hvað. líka svakalegt að hann hafi ætlað að taka 5o tónleika í röð í london. svipað og taka esjuna sjö sinnum í röð, rosalegt að geta það. lýsandinn mætti líka vera aðeins hressari vá.

æfingaleikur v ír í gær - stemmari að mæta þeim, nema fékk ekki að tækla ella og guffa. hefðu nú samt ekki náð þeim síðastnefnda, er í ansi góðu formi greinilega.
búin að detta í bústaðinn nokkrum sinnum - afar ljúft. tómas að fíla sig í botn. vantar bara kofa - spurning að fara að detta í smíðavinnu.

Sören í heimsókn á klakanum. ótrúlegt en satt þá skellti hann sér á gullfoss og geysir, sem er helst merkilegt fyrir þær sakir að hann fór þann hring fimm sinnum þegar hann bjó hér. en hittingur á morgun.
posted by 4fl at 11:57 PM
miðvikudagur, júní 17, 2009
nýja klár.

posted by 4fl at 11:01 PM
jamm.
hands down slakasti 17.júní í manna minnum :-( komst ekki down town í dag, en skelltum okkur um átta leytið. við erum að tala um að 10.bekkingar áttu svæðið - fékk bara 10 hæ. en ljósi punkturinn var að fyrrum nemendur mínir voru að spila á stóra sviðinu. vil meina að ensku hlustunaræfingarnar mínar í denn eigi eitthvað í hlut.
tók cars blöðru fyrir tomma - fattaði að ég hún var líka fyrir valinu í fyrra. þarf að fiffa myndina í ár.

posted by 4fl at 10:39 PM
þriðjudagur, júní 16, 2009
jó.
datt inn í "stelpukvöld" hjá mömmu. báðar ömmurnar í fanta formi, eiginlega svona priceless tími. held líka að amma agga hefði átt að vera í uppstandi.
manic street preachers - the greatest hits. ekkert svo great! kannski þrír hittarar.
"spurt að leikslokum" komið í hús. líka "wiebelglazen" en held að það sé ekkert svakalegt.
missi af bænum during the day en stefni á arnarhól eftir mat. blaðra og fáni klár fyrir tomma - svo snudda og málið dautt. stefni líka á bakstur á morgun, leggja í púkið.
búinn að snúa svefnherberginu við - gríðarleg spenna hvort guðrún gefi grænt á það, líklegast ekki samt.
posted by 4fl at 11:47 PM
|